Þetta verkefni miðar að því að einfalda og leiðbeina byrjendum í gegnum fyrsta framlag þeirra. Ef þú vilt gera þitt fyrsta framlag, fylgdu þá skrefunum hér að neðan.
Ef þú ert ekki þægileg(ur) með skipanalínu, hér eru leiðbeiningar með því að nota GUI verkfæri.
Ef þú ert ekki með Git uppsett á tölvunni þinni, settu það upp.
Forkaðu þessa geymslu með því að smella á "Fork" hnappinn efst á þessari síðu. Þetta mun búa til afrit af geymslunni á þínum GitHub reikningi.
Núna klónaðu forkaða geymsluna á þína tölvu. Farðu á GitHub reikninginn þinn, opnaðu forkaða geymsluna, smelltu á "Code" hnappinn og smelltu síðan á "copy to clipboard" táknið.
Opnaðu terminal og keyrðu eftirfarandi git skipun:
git clone "url sem þú afritaðir"
þar sem "url sem þú afritaðir" (án gæsalappa) er slóðin á geymsluna (þitt fork af þessu verkefni). Sjá fyrri skref til að fá slóðina.
Til dæmis:
git clone https://github.com/þitt-notandanafn/first-contributions.git
þar sem þitt-notandanafn er þitt GitHub notandanafn. Hér ertu að afrita innihald first-contributions geymslunnar á GitHub yfir á þína tölvu.
Farðu í geymsluskrána á tölvunni þinni (ef þú ert ekki þegar þar):
cd first-contributions
Nú búðu til grein með því að nota git checkout skipunina:
git checkout -b <bæta-við-þitt-nafn>
Til dæmis:
git checkout -b add-jon-jonsson
(Nafn greinarinnar þarf ekki að innihalda orðið add en það er skynsamlegt að hafa það með þar sem tilgangur þessarar greinar er að bæta nafninu þínu við lista yfir framlagsmenn.)
Nú opnaðu Contributors.md skrána í textaritli og bættu nafninu þínu við. Ekki bæta því við í upphafi eða enda skrárinnar. Settu það hvar sem passar miðað við stafrófsröð. Vistaðu síðan skrána.
Ef þú ferð í verkefnismöppuna og framkvæmir skipunina git status, þá muntu sjá að það eru breytingar.
Bættu þessum breytingum við greinina sem þú bjóst til með git add skipuninni:
git add Contributors.md
Nú commit-aðu þessar breytingar með git commit skipuninni:
git commit -m "Add <þitt-nafn> to Contributors list"
og settu þitt nafn í staðinn fyrir <þitt-nafn>.
Ýttu breytingunum þínum með git push skipuninni:
git push origin <nafn-á-grein-þinni>
og settu nafnið á greininni sem þú bjóst til áður í staðinn fyrir <nafn-á-grein-þinni>.
Ef þú ferð í geymsluna þína á GitHub, þá muntu sjá Compare & pull request hnapp. Smelltu á þann hnapp.
Nú sendu inn pull request.
Fljótlega mun ég sameina allar breytingarnar þínar við aðalgrein þessa verkefnis. Þú færð tilkynningu í tölvupósti þegar breytingarnar hafa verið sameinaðar.
Til hamingju! Þú hefur nú lokið við hefðbundið fork -> clone -> edit -> pull request verkflæði sem þú munt oft rekast á sem framlagsmaður!
Fagnaðu framlagi þínu og deiltu því með vinum þínum og fylgjendum með því að fara á vefappið.
| GitHub Desktop | Visual Studio 2017 | GitKraken | Visual Studio Code | Atlassian Sourcetree | IntelliJ IDEA |





